Við erum systkinin Þór Jökull og Þórdís Tinna Steinarsbörn
Við heitum Þór Jökull og Þórdís Tinna og erum Steinars og Guðrúnar börn
Þór Jökull fæddist 19 feb 2007. Hann vóg 3080 gr og var 48 cm á lengd. Þórdís Tinna fæddist 13 feb 2010. Hún vóg 3980 gr og var 51 cm á lengd. Það munaði nærri því kílói á okkur en eitt kíló er mikið þegar maður er svona lítill.
Mamma mín heitir Guðrún Helga og er kennari. Pabbi minn heitir Steinar Þór og er matreiðslumaður. Mamma og pabbi eru stoltust af ungunum sínum og finnst þau fallegust börn sem að hafa fæðst hér á jörð.